top of page

Um okkur

 

Litla Trésmiðjan – líkkistuvinnustofa og trésmiðja, var stofnuð á Akureyri í janúar 2010 af Sigurði Óla Þórissyni húsasmíðameistara.

 

Fyrirtækið sérhæfir sig í framleiðslu á líkkistum hannaðar af Sigurði Óla og Sæmundi Friðfinnssyni.

 

Kisturnar eru smíðaðar frá grunni hjá Litlu Trésmiðjunni,  lögð er mikil áhersla á að vandað sé til verks við samsetningu og frágang.

 

Festingar fyrir höld og slár eru hannaðar og smíðaðar hjá fyrirtækinu.

 

Krossar á loki og kistu, eru í sömu hlutföllum og kross íslenska fánans.

 

Líkkisturnar frá Litlu Trésmiðjunni eru íslensk hönnun, íslenskt handverk framleiddar á Akureyri.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

bottom of page